Molastaðir L146862 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2402164
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 33. fundur - 29.02.2024
Þórður Karl Gunnarsson byggingartæknifræðingur sækir f.h. Halldórs Gunnars Hálfdánarsonar og Maríu Þ. Númadóttur um leyfi til að byggja anddyri við einbýlishús sem stendur á jörðinni Molastöðum, L146862 í Fljótum. Framlagðir uppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 79010300, númer A-100, A-101 og A-102, dagsettir 15. janúar 2024. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.