Leikskólalóð í Varmahlíð
Málsnúmer 2403074
Vakta málsnúmerFræðslunefnd - 24. fundur - 13.03.2024
Fyrstu drög að hönnun lóðar við nýjan leikskóla í Varmahlíð kynntar sem Betula landslagsarkitektar ehf hafa unnið. Búið er að yfirfara teikningar með stjórnendum ásamt fulltrúum starfsfólks og foreldra og unnið verður með athugasemdir og ábendingar frá þeim.