Fara í efni

Gjaldskrá hitaveitu 2025

Málsnúmer 2409188

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 11. fundur - 19.09.2024

Kynnt voru drög að breytingum gjaldskrár og reglugerðar um SKV-hitaveitu frá 2013. Landbúnaðar- og innviðanefnd felur starfsmönnum Skagafjarðarveitna að vinna drögin áfram og leggja fram á næsta fundi.

Árni Egilsson skrifstofustjóri Skagafjarðarveitna og Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri Skv. sátu fundinn undir þessum lið.
Sólborg Borgarsdóttir vék af fundi eftir þennan lið

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 12. fundur - 03.10.2024

Framhald á umræðu um breytingar á gjaldskrá og reglugerð um SKV-hitaveitu frá 2013.
Afgreiðslu frestað og sviðsstjóra falið að afla frekari upplýsinga.