Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 2
Málsnúmer 2410009F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 31. fundur - 23.10.2024
Fundargerð 2. fundar byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki frá 8. október 2024 lögð fram til afgreiðslu á 31. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 2 Undir þessum dagskrárlið tóku Sandra Dís Dagbjartsdóttir og Helena Margrét Áskelsdóttir frá VSÓ ráðgjöf þátt í fundinum.
Farið yfir drög að forvalsgögnum vegna þátttökurétts í lokaðri hönnunarsamkeppni vegna nýs menningarhúss á Sauðárkróki. Um er að ræða hönnunarsamkeppni eins og henni er lýst í 44. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Í verkinu felst hönnun um 1150 fm nýbyggingar og 1091 fm endurbóta á núverandi safnahúsi. Hönnunarteymi skal samanstanda af eftirfarandi aðilum: Hönnunarstjóra, arkitekt, landslagsarkitekt, hönnuði burðarvirkja, hönnuði lagna- og loftræstikerfa, hönnuði rafkerfa og lýsingar, hönnuði brunatækni og hönnuði hljóðvistar.
Markmiðið er að byggja aðlaðandi og vel útfært menningarhús sem sómir sér vel í umhverfinu og mætir þörfum metnaðarfulls menningarstarfs í Skagafirði. Einnig verður litið til hagkvæmnis sjónarmiða og kröfu um að framkvæmdin verði innan fjárheimilda.
Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki samþykkir samhljóða að ráðast í forval vegna þátttökurétts í lokaðri hönnunarsamkeppni nýs menningarhúss á Sauðárkróki í samræmi við fyrirliggjandi drög með áorðnum breytingum.
Bókun fundar Afgreiðsla 2. fundar byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki staðfest á 31. fundi sveitarstjórnar 23. október 2024 með níu atkvæðum.