Byggðarráð Skagafjarðar - 117
Málsnúmer 2410019F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 31. fundur - 23.10.2024
Fundargerð 117. fundar byggðarráðs frá 18. október 2024 lögð fram til afgreiðslu á 31. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Svavar Atli Birgisson sat fundinn undir þessum lið.
Lögð fram til afgreiðslu uppfærð Brunavarnaráætlun fyrir sveitarfélagið Skagafjörð. Áætlunin heitir Brunavarnaráætlun Brunavarna Skagafjarðar og er með tímastimpilinn 04-10-2024 15:46. Gildir hún til loka árs 2029. Markmið með áætluninni er að stuðla að því að vernda líf og heilsu fólks, eignir og umhverfi með fullnægjandi eldvarnareftirliti og viðbúnaði við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.
Byggðarráð samþykkir samhljóða Brunavarnaráætlun Brunavarna Skagafjarðar og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Brunavarnaráætlun Skagafjarðar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Mál áður á dagskrá 116. fundar byggðarráðs þann 8. október sl.
Rúnar Páll Hreinsson sendi byggðarráði erindi dagsett 9. október 2024 þar sem hann fer þess á leit við byggðarráð að endurskoða ákvörðun sína að hafna öllum innkomnum kauptilboðum í hólf nr. 23.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga. Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar byggðarráðs staðfest á 31. fundi sveitarstjórnar 23. október 2024 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Byggðarráð samþykkir samhljóða að kjörstaðir við Alþingiskosningar 30. nóvember 2024 verði eftirfarandi: Bóknámshús FNV á Sauðárkróki, Varmahlíðarskóli og Félagsheimilið Höfðaborg á Hofsósi. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Kjörstaðir við Alþingiskosningar 30. nóv 2024, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Lagður fram viðauki 6 við fjárhagsáætlun ársins 2024. Viðaukinn inniheldur aukin framlög til rekstrar að fjárhæð 7.860 þkr. svo sem hér segir:
Alþingiskosningar í nóvember 2024.
Aukið fjármagn til viðhalds gatna á Sauðárkróki.
Aukið fjármagn til snjómoksturs.
Lækkun tekna í málaflokki 04 vegna breytingar á gjaldskrá leikskóla frá 1. október 2024 og breyting á afslætti til tekna í málaflokki 02.
Aukning í launum á bókasafni vegna langtímaveikinda starfsmanns.
Brottfelling kostnaðarþátttöku foreldra vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða.
Kostnaður við HR monitor mannauðsmælingar.
Aukið fé til frekari liðveislu á Sauðárkróki.
Fé til viðgerða á ytra byrði A-álmu í Árskóla.
Þessum gjöldum er mætt með aukningu útsvarstekna, fasteignaskatts og lóðaleigu miðað við fyrri áætlun og í samræmi við rauntölur, millifærslur á milli deilda innan áætlunar og lækkun handbærs fjár.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar til sveitarstjórnar til afgreiðslu. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Viðauki 6 við fjárhagsáætlun 2024, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Undir þessum lið sat Margeir Friðriksson fjármálastjóri Skagafjarðar í gegnum fjarfundarbúnað.
Lögð fram fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árin 2025-2028.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun 2025-2028 til fyrri umræðu með áorðnum breytingum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Fjárhagsáætlun 2025-2028, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Lögð fram afskriftarbeiðni fyrir 5 einstaklinga, dagsettar 10. október 2024 og 16. október 2024, frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, vegna fyrndra þing- og sveitarsjóðsgjalda. Heildarfjárhæð gjalda er 900.507 kr. með dráttarvöxtum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að afskrifa kröfurnar. Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar byggðarráðs staðfest á 31. fundi sveitarstjórnar 23. október 2024 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Lögð fram samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis- og þjónustugjöld í sveitarfélaginu Skagafirði, með gildistíma frá 1. janúar 2025.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða samþykkt og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá gatnagerðargjalda, stofngjald fráveitu, byggingarleyfis- og þjónustugjöld 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Máli vísað frá 32. fundi fræðslunefndar þann 15. október sl., þannig bókað:
"Nefndin leggur til við byggðarráð að skoðun verði flýtt á kostum þess að stækka yngra stig Ársala og finna staðsetningu nýs leikskóla til lengri framtíðar þar sem ljóst er að núverandi fjöldi plássa er ekki nægur til framtíðar svo börn geti fengið leikskólapláss í fyrstu aðlögun eftir að þau verða 12 mánaða.
Tillagan samþykkt samhljóða."
Byggðarráð samþykkir samhljóða að vinna málið áfram með fræðslunefnd, skipulagsnefnd, starfsmönnum fjölskyldusviðs og starfsmönnum veitu- og framkvæmdasviðs. Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar byggðarráðs staðfest á 31. fundi sveitarstjórnar 23. október 2024 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Máli vísað frá 27. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þann 10. október sl., þannig bókað:
"Tekin fyrir gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga fyrir 2025. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 3,7% hækkun frá fyrra ári og vísar nefndin henni til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir samhljóða gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga fyrir árið 2025 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Máli vísað frá 27. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þann 10. október sl., þannig bókað:
"Tekin fyrir gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir 2025. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 3,7% hækkun frá fyrra ári og vísar nefndin henni til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir samhljóða gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir árið 2025 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Héraðsskjalasafn Skagfirðinga 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Máli vísað frá 27. fundi stvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þann 10. október sl., þannig bókað:
"Tekin fyrir gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga fyrir 2025. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 3,7% hækkun frá fyrra ári og vísar nefndin henni til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir samhljóða gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga fyrir árið 2025 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Máli vísað frá 27. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 14. október sl., þannig bókað:
"Lögð er fram tillaga að gjaldskrá Húss frítímans 2025. Nefndin samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti og vísar til byggðarráðs."
Gjaldskráin hækkar um 3,7% frá gjaldskrá ársins 2024.
Byggðarráð samþykkir samhljóða gjaldskrá Húss frítímans fyrir árið 2025 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Húss frítímans 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Máli vísað frá 27. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 14. október sl., þannig bókað:
"Lögð fram tillaga að gjaldskrá íþróttamannvirkja 2025. Nefndin samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar til byggðarráðs."
Gjaldskráin hækkar um 3,7% frá gjaldskrá ársins 2024.
Byggðarráð samþykkir samhljóða gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2025 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá íþróttamannvirkja 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Máli vísað frá 27. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 14. október sl., þannig bókað:
"Daggjald er ákvarðað í reglugerð um dagdvöl aldraðra nr. 1245/2016 með árlegum breytingum. Nefndin samþykkir að fæðiskostnaður á dag árið 2025 verði 654 kr. Vísað til byggðarráðs."
Þetta er hækkun um 3,7% frá gjaldskrá ársins 2024.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fæðiskostnaður á dag árið 2025 í dagdvöl aldraðra verði 654 kr. og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Dagdvöl 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Málinu vísað frá 27. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 14. október sl., þannig bókað:
"Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1. janúar 2025 verði reiknuð með sama hætti og verið hefur samkvæmt 9. gr. reglna þ.e. 80,4 % af atvinnuleysisbótum eins og þær voru í nóvember árið á undan. Vísað til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir samhljóða að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1. janúar 2025 verði 80,4% af atvinnuleysisbótum eins og þær voru í nóvember árið á undan. Málinu vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Málinu vísað frá 27. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 14. október sl., þannig bókað:
"Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að upphæð niðurgreiðslna skv. 6. gr. reglna um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og um foreldragreiðslur hækki um 3,7%. Niðurgreiðsla verður þó aldrei hærri en sem nemur mismun á heildargjaldi vistunar hjá dagforeldri og í leikskóla (gæsla, kostnaður og fæði). Vísað til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir samhljóða 3,7% hækkun upphæðar niðurgreiðslna skv. 6. gr. reglna um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og um foreldragreiðslur. Málinu vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Niðurgreiðslur til dagforeldra og foreldragreiðslur 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Málinu vísað frá 32. fundi fræðslunefndar þann 15. október sl., þannig bókað:
"Lögð fram tillaga að 3,7% hækkun gjaldskrár tónlistarskóla sem er í samræmi við verðlagsbreytingar út frá þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Veittur er 25% afsláttur ef fleiri en einn nemandi er saman í hljóðfæranámi. Veittur er systkinaafsláttur, 25% fyrir annað barn, 50% fyrir þriðja barn og 100% fyrir fjórða barn.
Tillagan samþykkt samhljóða og vísað til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá í Tónlistarskóla Skagafjarðar fyrir árið 2025 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá tónlistarskóla 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Málinu vísað frá 32. fundi fræðslunefndar þann 15. október sl., þannig bókað:
"Lögð fram tillaga að 3,7% hækkun dvalargjalda, fæðisgjalda og skráningardaga leikskóla sem er í samræmi við verðlagsbreytingar út frá þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Systkinaafsláttur af dvalargjaldi verður óbreyttur, 50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn. Sektargjald fyrir að sækja barn of seint eða mæta of snemma helst óbreytt.
Tillagan samþykkt samhljóða og vísað til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá fyrir leikskóla Skagafjarðar fyrir árið 2025 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá leikskóla 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. - .19 2410163 Samráð; Breyting á lögum um opinber fjármál (fjármálaáætlun ekki lögð fram á kosningaári)Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 209/2024, "Breyting á lögum um opinber fjármál (fjármálaáætlun ekki lögð fram á kosningaári)".
Umsagnarfrestur er til og með 25.10.2024. Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar byggðarráðs staðfest á 31. fundi sveitarstjórnar 23. október 2024 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 205/2024, "Breyting á kosningalögum".
Umsagnarfrestur er til og með 21.10.2024. Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar byggðarráðs staðfest á 31. fundi sveitarstjórnar 23. október 2024 með níu atkvæðum. - .21 2410178 Samráð; Breyting á reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélagaByggðarráð Skagafjarðar - 117 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 210/2024, "Breyting á reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga".
Umsagnarfrestur er til og með 24.10.2024. Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar byggðarráðs staðfest á 31. fundi sveitarstjórnar 23. október 2024 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Óbyggðanefnd dagsettur 10. október 2024 þar sem tilkynnt er um að fjármála- og efnahagsráðherra hefur fyrir hönd íslenska ríkisins afhent óbyggðanefnd endurskoðaðar þjóðlendukröfur vegna eyja og skerja umhverfis landið.
Óbyggðanefnd kallar eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta og hefur nú framlengt kröfulýsingarfrest þeirra til 13. janúar 2025. Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar byggðarráðs staðfest á 31. fundi sveitarstjórnar 23. október 2024 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Lagt fram til kynningar bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga dagsett 1. október 2024. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (EFS) hefur yfirfarið ársreikning Skagafjarðar fyrir árið 2023 ásamt skýrslu endurskoðanda. Samkvæmt ársreikningnum hefði sveitarfélagið ekki uppfyllt þau lágmarksviðmið sem kveðið er á um í lögum, væru þau virk. Eftirlitsnefndin leggur áherslu á það við sveitarstjórn að nú þegar verði leitað leiða til þess að uppfylla lágmarksviðmið nefndarinnar og hugað sé sérstaklega að því að fyrir árið 2026 verði lögfest lágmarksskilyrði uppfyllt.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa erindinu til sveitarstjórnar.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Bréf til sveitarstjórnar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 117 Lagt fram til kynningar bréf frá Innviðaráðuneytinu dagsett 3. október 2024 um þátttekendur í minningardegi um þau sem hafa látist í umferðinni. Árlegur alþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 17. nóvember 2024. Dagurinn er haldinn þriðja sunnudag í nóvember ár hvert og tileinkaður minningu þeirra sem hafa látist í umferðarslysum. Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar byggðarráðs staðfest á 31. fundi sveitarstjórnar 23. október 2024 með níu atkvæðum.