Fara í efni

Gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu 2025

Málsnúmer 2410046

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 13. fundur - 17.10.2024

Kynnt var uppfærð gjaldskrá Norðurár bs. fyrir sorphirðu og sorpeyðingu sem tekur gildi 1. janúar 2025. Hækkanir á urðunargjöldum eru 10-25%, breytilegt eftir flokkum. Markmiðið með mismunandi hækkunum er að draga enn frekar úr urðun úrgangsefna sem hægt væri að endurvinna.

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 15. fundur - 08.11.2024

Lögð fram gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Skagafirði vegna ársins 2025. Heildargjöld á íbúðareiningu eru 95.000 kr. á árinu 2024 og munu hækka um 4.990 kr. eða 5,25% og verða því 99.990 kr. árinu 2025. Þessi hóflega hækkun er meðal annars árangur af góðri flokkun íbúa, en á árinu hækkar gjaldskrá vegna urðunar um 15% ásamt því að samningur við Íslenska gámafélagið ehf. tekur verðbreytingum skv. verksamningi.
Jafnframt samþykkt að breyta 2. grein gjaldskrárinnar vegna eyðingu dýraleifa, þannig að fjöldi gjalddaga verði sjö í stað tíu. Fyrsti gjalddagi verður 1. júní ár hvert. Ástæða fyrir þessu er hversu seint áreiðanlegar búfjártölur berast frá opinberum aðilum.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá, framangreinda breytingu á 2. grein gjaldskrárinnar og vísar henni til afgreiðslu byggðarráðs.

Byggðarráð Skagafjarðar - 122. fundur - 18.11.2024

Máli vísað frá 15. fundi Landbúnaðar- og innviðanefndar þann 8. nóvember 2024, þannig bókað:

"Lögð fram gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Skagafirði vegna ársins 2025. Heildargjöld á íbúðareiningu eru 95.000 kr. á árinu 2024 og munu hækka um 4.990 kr. eða 5,25% og verða því 99.990 kr. árinu 2025. Þessi hóflega hækkun er meðal annars árangur af góðri flokkun íbúa, en á árinu hækkar gjaldskrá vegna urðunar um 15% ásamt því að samningur við Íslenska gámafélagið ehf. tekur verðbreytingum skv. verksamningi.
Jafnframt samþykkt að breyta 2. grein gjaldskrárinnar vegna eyðingu dýraleifa, þannig að fjöldi gjalddaga verði sjö í stað tíu. Fyrsti gjalddagi verður 1. júní ár hvert. Ástæða fyrir þessu er hversu seint áreiðanlegar búfjártölur berast frá opinberum aðilum.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá, framangreinda breytingu á 2. grein gjaldskrárinnar og vísar henni til afgreiðslu byggðarráðs."

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.