Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd

15. fundur 08. nóvember 2024 kl. 10:00 - 11:23 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson fjármálastjóri
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson Fjármálastjóri
Dagskrá

1.Gjaldskrá Skagafjarðarhafna 2025

Málsnúmer 2410044Vakta málsnúmer

Lögð fram gjaldskrá Skagafjarðarhafna fyrir árið 2025. Hækkun gjaldskrárinnar frá árinu 2024 er 3,7%.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða gjaldskrá Skagafjarðarhafna fyrir árið 2025 og vísar henni til afgreiðslu byggðarráðs.

2.Gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu 2025

Málsnúmer 2410046Vakta málsnúmer

Lögð fram gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Skagafirði vegna ársins 2025. Heildargjöld á íbúðareiningu eru 95.000 kr. á árinu 2024 og munu hækka um 4.990 kr. eða 5,25% og verða því 99.990 kr. árinu 2025. Þessi hóflega hækkun er meðal annars árangur af góðri flokkun íbúa, en á árinu hækkar gjaldskrá vegna urðunar um 15% ásamt því að samningur við Íslenska gámafélagið ehf. tekur verðbreytingum skv. verksamningi.
Jafnframt samþykkt að breyta 2. grein gjaldskrárinnar vegna eyðingu dýraleifa, þannig að fjöldi gjalddaga verði sjö í stað tíu. Fyrsti gjalddagi verður 1. júní ár hvert. Ástæða fyrir þessu er hversu seint áreiðanlegar búfjártölur berast frá opinberum aðilum.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá, framangreinda breytingu á 2. grein gjaldskrárinnar og vísar henni til afgreiðslu byggðarráðs.

3.Fjárhagsáætlun 2025 - Landbúnaðar og innviðanefnd

Málsnúmer 2410172Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 08-Hreinlætismál, 10-Umferða- og samgöngumál, 11-Umhverfismál, 13-Landbúnaðarmál, 61-Hafnarsjóður, 63-Vatnsveita, 65-Sjóveita, 67-Hitaveita, 69-Fráveita vegna ársins 2025.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða framlagðar fjárhagsáætlanir fyrir árið 2025 vegna ofangreindra málaflokka og vísar til byggðarráðs til afgreiðslu.

Fundi slitið - kl. 11:23.