Jólamót Molduxa 2024
Málsnúmer 2411010
Vakta málsnúmerFélagsmála- og tómstundanefnd - 28. fundur - 06.11.2024
Íþróttafélagið Molduxar óskar eftir endurgjaldslausum aðgangi að íþróttahúsinu á Sauðárkróki vegna jólamóts félagsins þann 26. desember nk. Nefndin samþykkir samhljóða að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa og vísar til 4. gr. reglna um útleigu á íþróttahúsum í ákvörðun sinni.
Guðlaugur Skúlason vék af fundi undir þessum dagskrárlið.