Menningar- og kynningarnefnd
Menningar- og kynningarnefnd Skagafjarðar, fundur í Ráðhúsinu á Sauðárkróki,
föstudaginn 16.02.2007, kl. 15:00.
Fundinn sátu Guðrún Helgadóttir, Hrund Pétursdóttir, Páll Dagbjartson og Áskell Heiðar Ásgeirsson sviðsstjóri sem ritaði fundargerð.
DAGSKRÁ:
1) Umsögn um stefnu stjórnvalda í fornleifavernd á Íslandi 2006-2011
2) Menningarsjóður.
3) Önnur mál
AFGREIÐSLUR:
1) Umsögn um stefnu stjórnvalda í fornleifavernd á Íslandi 2006-2011
Formaður lagði fram drög að athugasemdum við stefnu stjórnvalda í fornleifavernd á Íslandi 2006-2011. Nefndin samþykkir drögin, sviðsstjóra falið að senda þau til réttra aðila.
2) Menningarsjóður
Formaður lagði fram drög að reglugerð fyrir menningarsjóð Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi drög. Sviðsstjóra falið að auglýsa lausa styrki til menningarviðburða á fyrri hluta ársins.
3) Önnur mál
Áður en fundurinn hófst hlýddi nefndin á fyrirlestur frá Guðmundi Oddi Magnússyni prófessor í Listaháskóla Íslands.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:30