Skipulags- og byggingarnefnd
Dagskrá
1.Sauðárkrókur - Túnahverfi - lóðarmál
Málsnúmer 1807149Vakta málsnúmer
Fyrir liggja, hjá skipulags- og byggingarfulltrúa umsóknir um lóðir fyrir einbýlishús í Túnahverfinu á Sauðárkróki. Öllum byggingarhæfum lóðum í hverfinu hefur verið úthlutað. Skipulags- og byggingarnefnd beinir því til Byggðarráðs að hefja framkvæmdir við gerð nýrrar götu,Melatún.
2.Stóra-Gerði 146590 - Umsókn um landskipti
Málsnúmer 1806265Vakta málsnúmer
Gunnar kr. Þórðarson kt. 041248-4169 þinglýstur eigandi Stóragerðis, landnúmer 146590 óskar eftir heimild Skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar til að skipta landspildu út úr jörðinni líkt og sýnt er á meðfylgjandi hnitsettum afstöðuuppdrætti. Uppdrátturinn er gerður á Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni . Númer uppdráttar er S-102, verknúmer 7296. Uppdráttur dagsettur 22. júní 2018.
Þá er óskað heimildar til að leysa spilduna úr landbúnaðarnotum. Tekið er fram í umsókn að lögbýlaréttur og hlunnindi muni áfram fylgja landnúmeri 146590. Erindið samþykkt.
Þá er óskað heimildar til að leysa spilduna úr landbúnaðarnotum. Tekið er fram í umsókn að lögbýlaréttur og hlunnindi muni áfram fylgja landnúmeri 146590. Erindið samþykkt.
3.Hvannahlíð 4 - Fyrirspurn um byggingarleyfi
Málsnúmer 1807119Vakta málsnúmer
Gísli Árnason, sækir um leyfi til að byggja vegg á mörkum lóðarinnar Hvannahlíðar 4, og göngustígs á vegum sveitarfélagsins líkt og kemur fram á meðfylgjandi rissi. Veggur þessi verður byggður upp í lóðarhæð með grindverki að ofan. Mesta hæð veggjar frá gangstíg um 2 metrar. Erindið samþykkt. Framkvæmdin verði unnin á kostnað umsækjanda og í samráði við veitu og framkvæmdasvið.
4.Kirkjugata 7 - Fyrirspurn um byggingarleyfi
Málsnúmer 1806184Vakta málsnúmer
Dagmar Ásdís Þorvaldsdóttir eigandi Kirkjugötu 7 Hofsósi, spyrst fyrir um hvort leyfi fæst til að byggja viðbyggingu aftan við bílskúr hússins. Framhlið bílskúrs verður einnig breytt og þak hans endurbyggt. Meðfylgjandi eru aðaluppdrættir í vinnslu unnir af Trausta Val Traustasyni kt. 160783-5249. Uppdrættirnir eru númer A-01 og A-02 dagsettir 15.06.2018. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir umbeðnar breytingar.
5.Lóð 66 á Gránumóum - Umsókn um skiptingu lóðar
Málsnúmer 1806234Vakta málsnúmer
Með bréfi dagsettu 18. júní 2018 óskar Reynir Barðdal eftir samþykki Skipulags- og byggingarnefndar og Sveitarstjórnar um að fá að skipta lóð nr 66 á Grónumóum upp í þrjár sjáfstæðar eignir. Reynir Barðdal mætti á fund nefndarinnar og gerði nánari grein fyrir erindinu. Samþykkt að vinna málið áfram.
6.Skólastígur 1 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu.
Málsnúmer 1807107Vakta málsnúmer
Ólafur Björn Stefánsson kt. 050371-5579 og Helga Daníelsdóttir kt. 111163-5299 sækja um heimild til að breikka innkeyrslu og bílastæði á lóðinni Skólastíg 1 á Sauðárkróki um 3,5 m þannig að heildarbreidd heimkeyrslu og bílastæðis verð 6 m. Einnig er sótt um að gera sólpall á norðanverðri lóðinni. Með umsókn liggur fyrir skriflegt samþykki eigenda neðri hæðar Skólastígs 1. Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur gerður hjá Stoð verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni gerir nánari grein fyrir erindinu. Erindið samþykkt.
7.Bárustígur 11 og 13. Umsókn um breytingu lóðarmarka.
Málsnúmer 1807159Vakta málsnúmer
Ari Freyr Ólafsson kt. 030180-5429 og Kristín Þorsteinsdóttir kt. 220979-5399 eigendur Bárustígs 11, fasteignanúmer F2131226 og Erna Rut Kristjánsdóttir kt. 200387-2879 og Sveinn Rúnar Gunnarsson kt. 050693-3099 eigendur Bárustígs 13, fasteignarnúmer F2131230 og F2131231 sækjum um breytingu á afmörkun framangreindra lóða ásamt því að byggja vegg á lóðarmörkum. Framlagður uppdráttur dagsettur 24.11.2009, gerður af Ara Frey Ólafssyni kt. 030180-5429. Erindið samþykkt. Skipulags- og byggingarfullrúa falið að gera ný lóðarblöð og lóðarleigusamninga.
8.Auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis
Málsnúmer 1807128Vakta málsnúmer
Fyrir liggur erindi Evu B. Sólan Hannesdóttur fh. Umhverfisstofnunar þar sem því er beint til sveitarfélaganna að vera vakandi fyrir ólöglegum skiltum í náttúru landsins. Greint er frá reglum náttúruverndarlaga nr. 60/2013 og reglugerðar nr. 941/2011 um auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis. Þá er leitast við að útskýra hvað telst vera látlaust auglýsingaskilti. Umhverfisstofnum bindur vonir við að sveitarfélögin tilkynni til stofnunarinnar þegar grunur vaknar um að auglýsingskilti kunni að brjóta í bága við framangreindar reglur. Erindið lagt fram til kynningar.
9.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 72
Málsnúmer 1806016FVakta málsnúmer
Fundargerð 72. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.
10.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 73
Málsnúmer 1807012FVakta málsnúmer
Fundargerð 73. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 11:50.