Fundurinn er opinn kynningarfundur til að kynna auglýsta tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021, ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Tillagan fjallar um, (A) legu Blöndulínu 3 (raflína), (B) færslu á legu Sauðárkrókslínu 2, (C) áframhaldandi frestun á skipulagi fyrir virkjanakosti í Skagafirði, (D) urðunarsvæði við Brimnes er fellt út, (E) nýtt tengivirki og lega jarðstrengs á Sauðárkróki, (F) ný efnistökusvæði vegna framkvæmda og (G) stækkun iðnaðarsvæðis við Varmahlíð. Í tillögu er gerð grein fyrir forsendum breytinga, útfærslu og umhverfisáhrifum skv. lögum nr. 105/2006. Fundurinn var vel sóttur og að lokinni yfirferð um breytingartillöguna var orðið gefið laust. Margir kvöddu sér hljóðs og komu fram með ábendingar og athugasemdir sérstaklega varðandi legu Blöndulínu 3. Í fundarlok var fundarmönnum þökkuð góð fundarseta og ítrekað að athugasemdir og ábendingar við tillöguna þurfi að vera skriflegar og berast fyrir 4. febrúar nk.
Tillagan fjallar um, (A) legu Blöndulínu 3 (raflína), (B) færslu á legu Sauðárkrókslínu 2, (C) áframhaldandi frestun á skipulagi fyrir virkjanakosti í Skagafirði, (D) urðunarsvæði við Brimnes er fellt út, (E) nýtt tengivirki og lega jarðstrengs á Sauðárkróki, (F) ný efnistökusvæði vegna framkvæmda og (G) stækkun iðnaðarsvæðis við Varmahlíð.
Í tillögu er gerð grein fyrir forsendum breytinga, útfærslu og umhverfisáhrifum skv. lögum nr. 105/2006.
Fundurinn var vel sóttur og að lokinni yfirferð um breytingartillöguna var orðið gefið laust. Margir kvöddu sér hljóðs og komu fram með ábendingar og athugasemdir sérstaklega varðandi legu Blöndulínu 3.
Í fundarlok var fundarmönnum þökkuð góð fundarseta og ítrekað að athugasemdir og ábendingar við tillöguna þurfi að vera skriflegar og berast fyrir 4. febrúar nk.