Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar
Dagskrá
1.Byggðarráð Skagafjarðar - 418
Málsnúmer 0801018FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 418 Undirbúningsfundur með atvinnu- og ferðamálanefnd vegna fyrsta fundar með nefnd forsætisráðherra um aðgerðir til styrkingar atvinnu- og mannlífs á Norðurlandi vestra.
2.Byggðarráð Skagafjarðar - 419
Málsnúmer 0801022FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 419 Á fundinn kom starfshópur SSNV um framtíðarskipan samstarfs sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og kynnti samantekt um skilaboð samráðsfundar 28. nóvember 2007 og hugleiðingar um næstu skref. Málin rædd vítt og breytt m.a. um áherslur Skagfirðinga og framtíðarsýn um starfsemi SSNV.
3.Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Málsnúmer 0801021FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Forráðamenn Grafaróss ehf á Hofsósi komu til fundar til viðræðu um fiskvinnslu á staðnum, byggðakvóta ofl. Véku þeir síðan af fundi.
Byggðarráð fagnar áhuga þeirra á uppbyggingu á fiskvinnslu á Hofsósi og mun leitast við að aðstoða þá eftir föngum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram erindi frá ritstjóra Feykis til sveitarstjórna sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er eftir styrk til útgáfu blaðsins á árinu 2008. Ætlunin er að fjölga starfsmönnum á ritstjórn blaðsins.
Byggðarráð samþykkir að veita styrk til verkefnisins að upphæð kr. 40.000 á mánuði út árið 2008. Fjárveiting tekin af málaflokki 21890. Jafnframt hvetur byggðarráð þau sveitarfélög sem fengu erindið sent, til að taka þátt í verkefninu einnig. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lögð fram verkefnislýsing og tilboð um ráðgjöf frá NIRÁS Konsulenterne A/S, Danmörku.
Byggðarráð tekur jákvætt í málið og vísar því til umsagnar skipulags- og bygginganefndar. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram erindi frá Jarðgerð ehf varðandi gjaldtöku fyrir móttöku á lífrænum úrgangi frá sveitarfélaginu fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008 á meðan reynslutölum er safnað.
Byggðarráð samþykkir að greiða kr. 350.000 pr. mánuð fyrir fyrstu sex mánuði árins sem síðan verði leiðrétt miðað við innvegið magn á tímabilinu og endanlega gjaldskrá.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lögð fram ályktun almenns fundar í Smábátafélaginu Skalla 15. janúar sl. "Smábátafélagið Skalli óskar eftir að sveitarstjórnir á félagssvæðinu skori á dómsmálaráðherra að beita áhrifum sínum til að björgunarþyrla verði staðsett á Akureyri."
Byggðarráð tekur undir ályktun Smábátafélagsins Skalla og Læknafélags Norðvesturlands og skorar á dómsmálaráðherra að stuðla að því að björgunarþyrla verði staðsett á Akureyri. Sveitarstjóra falið að koma þessu á framfæri. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram erindi frá Ferðaþjónustunni Steinsstöðum þar sem óskað er eftir viðræðum við byggðarráð eða fulltrúa frá sveitarfélaginu varðandi Sundlaugina á Steinsstöðum og hugsanlega uppsetningu á vatnsrennibraut við sundlaugina.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra tæknisviðs að ræða við fulltrúa fyrirtækisins. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram erindi frá húsnefnd Félagsheimilisins Höfðaborgar þar sem farið er fram á lækkun fasteignagjalda eins og undanfarin ár vegna skólastarfsemi sem fer fram í félagsheimilinu.
Byggðarráð samþykkir að félagsheimilið greiði B-fasteignaskatt þann tíma sem skólastarf fer fram í húsinu. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram erindi frá Norðurlandsskógum þar sem starfsmenn verkefnisins bjóða sveitarstjórnum að fá til sín kynningu á stöðu verkefnisins og framtíðaráformum.
Vísað til landbúnaðarnefndar, umhverfis- og samgöngunefndar og skipulags- og bygginganefndar. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram erindi frá samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um samgönguáætlun, 292. mál. Æskir nefndin svars eigi síðar en 17. febrúar nk.
Vísað til umhverfis- og samgöngunefndar. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram erindi frá Norðurvegi ehf þar sem óskað eftir umsögn sveitarfélagsins um hugmyndir að nýrri veglínu sem félagið hefur látið hanna um Kjöl, þar sem farið er frá Gullfossi í suðri, austur fyrir Bláfell, yfir Svörtutungur, um Eyvindarstaðaheiði, um Goðdalafjall og niður í Skagafjörð í norðri. Sjá kynningarefni á nordurvegur.is.
Byggðarráð samþykkir að leita álits skipulags- og bygginganefndar, landbúnaðarnefndar, Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði, Náttúrverndarsamtaka í Skagafirði, Náttúrustofu Nl. vestra, fyrirtækja í flutningastarfsemi og framleiðslu í Skagafirði.
Aðrir áhugasamir aðilar sem hafa áhuga á eða telja sig hafa hagsmuna að gæta geta sett sig í samband við sveitarstjóra. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram til kynningar erindi frá Listskreytingasjóði ríkisins þar sem sjóðurinn auglýsir eftir umsóknum um styrki til listskreytinga í opinberum byggingum árið 2008. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2008.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram til kynningar fundarboð um fund á vegum verkefnisstjórnar Sáttmála til sóknar í skólamálum í Skagafirði. Fundurinn verður haldinn í Verinu 1. febrúar nk.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram til kynningar þakkarbréf frá Kiwanishreyfingunni á Íslandi fyrir framlag sveitarfélagsins í þágu Geðhjálpar, BUGL og Forma.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram til kynningar bréf um tilgang og hlutverk Landsvirkjunar Power ehf. Tilgangur félagsins er m.a. að taka þátt í hverskonar fjárfestingum á sviði orkumála.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram til kynningar bréf frá sýslumanninum á Sauðárkróki varðandi sölu á jörðinni Brautarholti, landnr. 146017. Seljandi er Svavar Haraldur Stefánsson og kaupandi Brautarholtsbændur ehf.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lagt fram til kynningar bréf frá sýslumanninum á Sauðárkróki varðandi sölu á jörðinni Mel II, landnr. 145988. Seljandi er Jón Sigurðsson og kaupandi Melsbú ehf.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Samþykkt tímabundin ráðning í starf verkefnisstjóra á markaðs- og þróunarsvið til 31. desember 2008. Vísað til byggðarráðs frá atvinnu- og ferðamálanefnd.
Byggðarráð staðfestir afgreiðslu atvinnu- og ferðamálanefndar. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 420 Lögð fram gjaldskrá félags- og tómstundanefndar vegna útleigu á Íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Vísað til byggðarráðs frá sveitarstjórn.
Byggðarráð staðfestir afgreiðslu félags- og tómstundanefndar.
4.Byggðarráð Skagafjarðar - 421
Málsnúmer 0802002FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 421 Lagt fram bréf frá Siglingastofnun varðandi fjögurra ára samgönguáætlun 2009-2012. Í bréfinu er kveðið á um að umsóknir um ríkisframlög til verkefna í hafnargerð, frumrannsókna og sjóvarna á áætlunartímabilinu skuli senda til Siglingastofnunar fyrir 15. mars nk.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 421 Samband ísl. sveitarfélaga hefur gefið út bókina Sveitarstjórnarlögin ásamt skýringum og athugasemdum eftir Sesselju Árnadóttur, lögfræðing og MPA. Bókin er fyrst og fremst ætluð sveitarstjórnarmönnum og öðrum þeim sem að sveitarstjórnarmálum koma.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að sjá um að kaupa eintök fyrir sveitarstjórnarfulltrúa og Ráðhús. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 421 Umsókn frá aðalstjórn Ungmennafélagsins Tindastóls um að fá að nota gagnagrunn sveitarfélagsins til að færa bókhald félagsins í.
Byggðarráð samþykkir að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að afla nánari upplýsinga um málið. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 421 Hólalax hf óskar eftir að sveitarfélagið gefi út afsal fyrir fasteigninni Nátthagi 3 að Hólum í Hjaltadal þegar fyrirtækið hefur greitt upp áhvílandi lán.
Byggðaráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gefa út afsal þegar áhvílandi lán hefur verið greitt upp. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 421 Lagt fram til kynningar svarbréf frá sveitarfélaginu til iðnaðarráðuneytisins varðandi mat á því hvar sé mest og brýnust þörf á tengingu við þriggja fasa rafmagn.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 421 Lögð fram til kynningar tilkynning um að halda auka ársþing SSNV föstudaginn 7. mars í Skagafirði.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 421 Lagt fram aðalfundarboð Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) fimmtudaginn 14. febrúar nk.
Byggðarráð felur landbúnaðarnefnd að sjá um að senda fulltrúa fyrir hönd sveitarfélagsins á fundinn. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 421 Lagt fram til kynningar erindi frá SSNV um samráðsfund með Launanefnd sveitarfélaga og fulltrúum sveitarstjórna á Norðurlandi vestra á Blönduósi 14. febrúar 2008. Gert er ráð fyrir að embættismenn og kjörnir fulltrúar sem mesta ábyrgð bera f.h. sveitarfélagsins á kjaramálum, launakostnaði og starfsmannamálum sæki fundinn.
5.Fyrirspurn til Sveitarstjóra Sveitarfél. Skagafjarðar
Málsnúmer 0802032Vakta málsnúmer
Fundi slitið.