Fara í efni

Mark Watson dagurinn í Glaumbæ

Í tilefni af afmæli enska aðalsmannsins Mark Watson stendur Byggðasafn Skagfirðinga fyrir dagskrá í Glaumbæ fimmtudaginn 18. júlí 🎉
Watson var mikill Íslandsvinur og eigum við honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938 sem átti sinn þátt í að bærinn hefur varðveist. Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundsins og er afmælisdagur hans "Dagur íslenska fjárhundsins".
 
Af þessu tilefni ætla íslenskir fjárhundar að heimsækja safnið. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda. Evelyn Ýr Kuhne mun auk þess fræða gesti um íslenska fjárhundinn og segja frá sýningu um íslenska fjárhundinn sem mun opna á næstunni á Lýtingsstöðum.
Í tilefni dagsins er frítt á safnið fyrir eigendur íslenskra fjárhunda í fylgd með hundunum 🐕
Ókeypis aðgangur er fyrir börn yngri en 18 ára og við minnum lögheimilisíbúa Skagafjarðar á ársmiðann, sem gildir í eitt ár frá kaupum hans óháð fjölda heimsókna.
 
Opið er á kaffihúsi safnsins í Áshúsi en þar er alltaf heitt á könnunni og nýbakað góðgæti.
Verið velkomin í Glaumbæ!