Rokk kórinn í Miðgarði
27. mars kl. 20:00
Tónleikar
Menningarhúsið Miðgarður
Rokk kórinn heldur tónleika í Menningarhúsinu Miðgarði.
Dagskráin mun spanna lög yfir 50 ára tímabil og því um fjölbreytta dagskrá að ræða.
Rokk kórinn er 25 manna kór úr Húnaþingi vestra sem hefur verið starfandi síðan 2021. Er þetta í annað skiptið sem kórinn stendur sjálfur fyrir tónleikum en hefur einnig komið fram sem gestaatriði í nokkur skipti. Meðlimir kórsins koma úr öllum áttum, bændur, kennarar, rafvirkjar, smiðir, dýralæknir, innheimtustjóri, fjármálastjóri, prjónakall, sjúkraliði, leikskólakennari, innkaupastjóri, sjúkraflutningamenn og áfram mætti telja. Æfingar fyrir þessa tónleika hafa staðið yfir með hléum síðan haustið 2023 og er mikil tilhlökkun í kórnum með að sýna afrakstur þeirra.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 en húsið opnar 19:30.
Miðasala fer fram á www.adgangsmidi.is og er miðaverð 5.000 kr.