Fara í efni

Á barnið þitt rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum ?

03.02.2014

Tannlækningar barna eru nú gjaldfrjálsar utan 2.500 kr árlegs komugjalds fyrir eftirfarandi hópa:

3 ára börn, þ.e. frá 3 ára afmælisdegi til 4 ára afmælisdaga

Börn á aldrinum 10 til og með 17 ára

Börn í bráðavanda sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Tilvísun þarf að berast tannlækni frá heilsugæslu, barnaverndar- eða félagsmálayfirvöldum og skilyrði að Sjúkratryggingar Íslands hafi samþykkt umsókn frá tannlækni á grundvelli tilvísunar.

Forsenda er að foreldri skrái heimilistannlækni fyrir barn sitt. Skrá þarf barnið í Réttindagátt á www.sjukra.is og þar er að finna nánari upplýsingar. Tannlæknar geta einnig séð um skráninguna sé þess óskað og mælt er með að skrá barn hjá heimilistannlækni við eins árs aldur.

Tannlæknaþjónusta barna verður innleidd í áföngum til ársins 2018