Fara í efni

Afleysingastarf á Skúlabraut 22, Blönduósi

03.02.2017

Afleysingastarf á Skúlabraut 22, Blönduósi

Fjölskylduþjónusta Skagafjarðar auglýsir laust til umsóknar afleysingastarf í þjónustu við fatlað fólk í búsetu á Skúlabraut 22, Blönduósi. Ekki er um fast starfshlutfall að ræða heldur tilfallandi afleysingu þegar á þarf að halda. Starfið felst í aðstoð við fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á. Unnið er í vaktavinnu og umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2017

Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Turid Rós Gunnarsdóttir, forstöðumaður, í síma 852-8960 eða sambyli@felahun.is. Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf) eða íbúagátt sveitarfélagsins.