Fara í efni

Álagning fasteignagjalda 2017

05.01.2017
Sauðárkrókur

Álagning fasteignagjalda 2017 er nú í vinnslu.  Álagningin byggir á gildandi fasteignamati allra fasteigna eins og það er í janúar ár hvert. Fasteignagjöld eru árlega lögð á allar fasteignir, nema þær séu undanþegnar með lögum, og ber eigandi á hverjum tíma ábyrgð á greiðslu þeirra. Eigendum fasteigna er bent á að tilkynna breytingar sem fyrst til sveitarfélagsins, er lúta að álagningunni og innheimtu.

Gjaldskrá fasteignagjalda 2017 er að finna hér.

Fasteignakröfur Sveitarfélagsins Skagafjarðar birtast í öllum heimabönkum og er fasteignaeigendum bent á að  notfæra sér beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum eða boðgreislur af greiðslukortum.

Í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins geta fasteignaeigendur: 

  • Skoðað álagningarseðil fasteignagjalda fyrir árið 2017, eftir að álagning hefur farið fram.
  • Óskað eftir að fá sendan álagningarseðil.
  • Óskað eftir að greiða fasteignagjöldin með boðgreiðslu.
  • Óskað eftir að greiða öll fasteignagjöldin á einum gjalddaga.
  • Tilkynnt um breytingar er varða greiðslur og greiðendur á fasteignagjöldum. 

Álagning – breytingar – innheimta: Þess er óskað að ábendingar um breytingar og leiðréttingar á álagningu eða innheimtu berist til sveitarfélagsins eftir einhverri eftirtalinna leiða; í gegnum Íbúagáttina, símleiðis í síma 455 6000 eða með tölvupósti á netfangið innheimta@skagafjordur.is 

Álagningarseðlar fasteignagjalda verða ekki sendir bréfleiðis nema þess sé óskað. Þeir sem fengu sendan álagningarseðil árið 2016 fá hann sendan áfram. Aðrir sem vilja fá álagningarseðil sendan vinsamlegast tilkynnið það sem fyrst.

Allir gjaldendur, lögaðilar og einstaklingar, geta nálgast rafræna útgáfu álagningarseðilsins í Íbúagáttinni og á vefsíðu island.is undir „Mínar síður“ þegar álagningu er lokið.

Gjalddagar fasteignagjaldanna verða nú frá 1. febrúar til og með 1. október 2017. Hægt er að fá að greiða öll gjöldin á einum gjalddaga 1. maí 2017 eða fyrr séu þau jöfn eða umfram 24.500 kr. Sækja verður um það fyrir 21. janúar 2017.

Greiðslumátar

  • Beingreiðslur: Innheimtur greiddar með beingreiðslum af bankareikningum greiðenda. Vinsamlegast hafið samband við þjónustufulltrúa í viðkomandi banka til að virkja þennan kost.
  • Boðgreiðslur: Tilkynna þarf til sveitarfélagsins ef óskað er eftir að greiða fasteignagjöld með kreditkorti. Þetta á einungis við þá sem eru í fyrsta sinn að óska eftir þessum greiðslumáta fasteignagjalda. Óska þarf eftir breytingu á greiðslumáta fyrir 21. janúar 2017.
  • Greiðsluseðlar í tölvupósti: Greiðsluseðill sendur í tölvupósti og birtist einnig í heimabönkum. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á netfangið innheimta@skagafjordur.is sé þess óskað fyrir 21. janúar 2017.
  • Greiðsluseðlar: Innheimtur greiddar með heimsendum greiðsluseðlum. Hvatt er til þess að aðrir greiðslukostir séu notaðir.

Athugið að greiðslumáti fyrra árs heldur sér ef ekki eru gerðar breytingar.

Elli- og örorkulífeyrisþegar: Lækkun fasteignaskatts á íbúðum tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru reiknuð við álagningu til bráðabirgða og er stuðst við tekjur samkvæmt skattframtölum 2016 vegna tekna ársins 2015. Endanlegur útreikningur fer fram þegar álagningu 2017, vegna tekna ársins 2016 er lokið. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali 2015. Ekki er þörf á að sækja um þennan afslátt. 

Frekari upplýsingar eru veittar á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið innheimta@skagafjordur.is eða hringja í síma 455 6000.

Sauðárkróki, 4. janúar 2017

Sveitarstjóri