Fara í efni

Álagningu fasteignagjalda árið 2015 er lokið.

24.01.2015

 Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, geta nú nálgast álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig er hægt að sækja álagningarseðla á vefsíðu island.is undir flipanum "Mínar síður".

Álagningarseðlar eru sendir á pappírsformi til þeirra greiðenda sem nýttu sér þennan möguleika árið 2014 og þeirra sem hafa bæst við síðan þá.
Greiðsluseðlar vegna fasteignagjaldanna birtast í öllum heimabönkum og sendir þeim sem óskað hafa eftir að fá þá heimsenda.

Við álagningu nú í janúar er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt til bráðabirgða hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og miðað er við tekjur ársins 2013.  Þegar álagningu 2015 vegna tekna ársins 2014 liggur fyrir næsta haust verður afslátturinn endanlega reiknaður og getur það leitt til inneignar eða skuldar eftir því sem við á.  Allar breytingar verða þá kynntar bréflega hverjum og einum.  Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Nánari upplýsingar um álagninguna og innheimtu eru veittar á heimasíðu sveitarfélagsins, í síma 455 6000 eða í innheimta@skagafjordur.is