Fara í efni

Alþjóðadagur móðurmálsins 21. febrúar

20.02.2014

Íslenska UNESCO-nefndin og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum hafa ákveðið að efna til nokkurra viðburða í vikunni 21. - 28. febrúar í tilefni af alþjóðadegi móðurmálsins. Leitað var samstarfs við fjölmarga aðila s.s. Félag tvítyngdra barna, Kennarasambands Íslands og Reykjavíkurborgar. Í ár verður vakin athygli á starfi þeirra aðila sem tengjast ólíkum tungumálum og hvatt til umræðu í skólum um hvernig hægt sé að koma til móts við nemendur sem tala annað móðurmál en íslensku. Einnig verður efnt til samvinnu við skóla um allt land sem felur í sér skráningu einstakra bekkja á tungumálaforða sínum. Móðurmálsvikunni lýkur með málþingi í Norræna húsinu föstudaginn 28. febrúar kl 15-17.

Sjá nánar www.vigdis.hi.is