Fara í efni

Árni Björn Björnsson og Ragnheiður Ásta Jóhannsdóttir hljóta Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2024

29.04.2024
Árni Björn og Ragnheiður Ásta, handhafar Samfélagsverðlauna Skagafjarðar 2024. Mynd GG/Feykir

Á setningu Sæluviku Skagfirðinga 2024 sem fram fór í  Safnahúsi Skagfirðinga í gær voru Samfélagsverðlaun Skagafjarðar veitt í níunda sinn. Verðlaunin eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.

Á 22. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 24. apríl sl. var samþykkt einum rómi að hjónin Árni Björn Björnsson og Ragnheiður Ásta Jóhannsdóttir hljóti Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2024. Í rökstuðningi með tilnefningunni segir meðal annars: Þau hjónin eru einstakar fyrirmyndir í samfélaginu okkar. Þau styðja dyggilega við íþróttastarfið í Skagafirði og eru ávallt fyrst til að bjóða fram hjálp þegar einhver þarf á að halda og hafa þau marg oft staðið fyrir söfnunum fyrir fjölskyldur og fyrirtæki í neyð. Með dugnaði, frumkvæði, hjálpsemi, samhyggð og góðu hjartalagi stuðla þau einnig að samheldni í samfélaginu okkar. Þau eru ein af ástæðum þess að það er gott að búa í Skagafirði og við getum verið stolt af því að tilheyra svo frábæru samfélagi því þau hvetja okkur hin til þess að verða betri einstaklingar.

Það er því vel við hæfi að hjónin Árni Björn og Ragnheiður Ásta hljóti Samfélagsverðlaun Skagafjarðar og er þeim þakkað opinberlega fyrir þeirra óeigingjarna framlag til samfélagsins í Skagafirði.