Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál - Skógargötureitur

26.04.2023
Skógargötureitur

Skipulagslýsing fyrir deiliskipulag – Skógargötureitur á Sauðárkróki

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 12. fundi sínum þann 19. apríl 2023 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir fyrirhugað deiliskipulag Skógargötureitar á Sauðárkróki skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin er unnin af Stoð ehf. Verkfræðistofu fyrir hönd Skagafjarðar. Skipulagssvæðið afmarkast af Skógargötu og Aðalgötu frá leikvelli að Kambastíg og er svæðið innan landnotkunarreits ÍB-401 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035. Viðfangsefni deiliskipulagsins verða meðal annars skilgreining á lóðarmörkum, byggingarreitum og byggingarskilmálum.

Skipulagslýsingin er í auglýsingu frá og með 26. apríl til og með 17. maí 2023. Lýsingin mun liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi fyrirhugaða deiliskipulagstillögu. Ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eða afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is í síðasta lagi 17. maí 2023.

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar

 

Skógargötureitur - Skipulagslýsing