Fara í efni

Auglýsing vegna kjörskrár

03.02.2022
Ráðhúsið á Sauðárkróki

Kjörskrá Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem staðfest var á fundi byggðarráðs 2. febrúar sl. vegna kosningar til sameiningar Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 19. febrúar 2022, liggur frammi í Ráðhúsinu á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 21, alla virka daga frá kl. 10:00 - 12:00 og 12:30 - 15:00 frá og með föstudeginum 4. febrúar til kjördags.

Upplýsingar um hvar þú ert á kjörskrá og hvaða kjördeild þú tilheyrir er einnig að finna á upplýsingaveitu Þjóðskrár Íslands.

 

Sveitarstjóri