Auglýst er eftir forgangsverkefnum í Skagafirði fyrir áfangastaðaáætlun Norðurlands (DMP)
24.08.2023
Skagafjörður auglýsir eftir uppbyggingarverkefnum í ferðaþjónustu til að setja á forgangslista Skagafjarðar fyrir áfangastaðaáætlun Norðurlands (DMP). Þau verkefni sem eru á forgangslista Skagafjarðar fá auka stig við mat á umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða en opnað verður fyrir umsóknir í haust.
Skila þarf inn greinagóðri lýsingu á verkefnum, upplýsingum um hagsmunaaðila ásamt samþykki allra landeigenda ef við á. Einnig skal taka fram hvort sótt verður um styrk í næstu úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Frestur til að skila inn uppbyggingarverkefnum er til og með 31. ágúst nk.
Tekið er á móti verkefnahugmyndum á netfangið heba@skagafjordur.is.
Nánari upplýsingar um áfangastaðaáætlunina er hægt að finna hér.