Fara í efni

Bilun í heitavatnslögn á Hólavegi

03.03.2014

Við Hólaveg 9 er bilun í heitavatnslögn sem gerir það að verkum að loka þarf fyrir heita vatnið meðan gert er við.  Heitavatnslaust verður frá Hólavegi 11 og út að Hólavegi 2.  Einnig detta út Ægisstígur og Ránarstígur og Sæmundargata að hluta.  Vonast er til að viðgerð verði lokið síðdegis í dag.  Beðist er velvirðingar á þessum óþægindum segir á vef Skagafjarðarveitna.