Fara í efni

Bilun í hitaveituæð veldur rafmagnsleysi á ljósastaurum

21.02.2023

Í ljós hefur komið bilun í hitaveituæð í gamla bænum á Sauðárkróki sem hefur áhrif á rafmagnslögn fyrir ljósastaura. Lögnin er í sundur og þarf að draga nýjan streng í lögnina en ekki er unnt að gera það fyrr en viðgerð á hitaveituæðinni er lokið. Áætlað er að viðgerðum ljúki á föstudaginn. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.