Fara í efni

Bjórhátíð á Hólum laugardaginn 1. júlí

30.06.2023

Bjórhátíðin á Hólum verður haldin á morgun, laugardaginn 1. júlí frá kl. 15 - 19.

Hátíðin hefur oft verið kölluð árshátíð handverksbruggara á Íslandi og munu gestir geta gætt sér á úrvals bjór frá flestum brugghúsum landsins. Hátíðin hefur líka þróast í að vera mikil matarveisla.

Ekki þarf að kaupa miða á hátíðina ef einungis á að koma og gæða sér á matarbitunum sem verða í boði.

Verið velkomin heim að Hólum.