Fara í efni

Bókamarkaðurinn í Safnahúsinu stendur til sunnudags

03.04.2014

Bókamarkaðurinn í Safnahúsinu stendur enn og í dag bætist við töluvert af bókum.

Sem dæmi má nefna nokkrar bækur eftir Guðrúnu frá Lundi, Göngur og réttir I-V, frumútgáfa,

Forystufé, Á refaslóðum, Hárkarlalegur og hákarlamenn, Sögur og ævintýri Astrid Lindgren,

Hestar í norðri I-IV, Lukku-Láki, Svipir og sagnir, Hlynir og hreggviðir og margt annað góðgæti.

Markaðurinn er opinn daglega frá kl. 13-17. Honum lýkur n.k. sunnudag.