Bókasafnið lokað frá og með 24. mars
23.03.2020
Frá og með morgundeginum, þriðjudeginum 24. mars, verður Héraðsbókasafn Skagfirðinga lokað til 14. apríl (þriðjudags eftir páska) samkvæmt fyrirmælum yfirvalda.
Í dag verður opið til kl. 18, notið tækifærið og náið ykkur í lesefni fyrir lokun.
Af þessu leiðir að skiladagar á efni sem á að skila 23. mars -13. apríl verða færðir til 14. apríl. Á þessum tíma reiknast ekki sektir á bækur.