Breyttur opnunartími sundlaugar Sauðárkróks
07.09.2015
Nú er haustið að ganga í garð, grunnskólarnir byrjaðir og í dag hefst hið árlega tveggja vikna sundnámskeið í yngstu bekkjum Árskóla. Sundlaug Sauðárkróks verður þá lokuð almenningi á virkum dögum milli kl 13 og 15 dagana 7. - 18. september.