Fara í efni

Dagdvöl aldraðra auglýsir eftir starfsfólki

07.03.2016

Fjölskylduþjónusta Sveitarfélagsins Skagafjarðar auglýsir eftir starfsmanni í Dagdvöl aldraðra

 Óskað er eftir

sjúkraliða – myndmenntakennara – leikskólakennara – félagsliða
 í 77,75 % starf á dagvinnutíma.

Tímabilið sem um ræðir er frá 1. júní 2016 til 31. maí 2017.

 

Við leitum að einstaklingi með:

  • góða vitund fyrir sjálfum sér og hvernig megi nýta hæfileika sem best í starfi með öldruðum.
  • skýra sýn á ábyrgð og virðingu í mannlegum samskiptum.
  • næman skilning á mannlegum þörfum.
  • opið og jákvætt viðmót, nýjungagjarnt, metnaðarfullt og skapandi.

 

Í starfinu felst aðallega umsjón í föndurstofu. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

 Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélag.

 

Nánari upplýsingar gefur Elísabet Pálmadóttir, forstöðumaður, í síma 453-5909 /
692-5909 eða með tölvupósti elisabet@skagafjordur.is.

 

Dagdvöl aldraðra er stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og aðstoð við athafnir daglegs lífs til að geta búið áfram heima eins lengi og kostur er.

 

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl  2016.

 Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins eða í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf).

 

Dagdvöl auglýsir einnig eftir tveimur sumarstarfsmönnum.