Fara í efni

Dagur tónlistarskólanna 22. febrúar

14.02.2014

Laugardaginn 22. febrúar verður Tónlistarskóli Skagafjarðar með opið hús og tónfundi í Varmahlíðarskóla kl 11:00 og tónlistarskólanum á Sauðárkróki kl 14:00. Nemendur munu einnig spila í grunnskólum og leikskólum víðsvegar um fjörðinn.

Dagur tónlistarskólanna er haldin síðasta laugardag í febrúarmánuði ár hvert. Þá efna tónlistarskólarnir til hátíðar hver á sínum stað. Meðal viðburða má nefna opið hús, tónleika, hljóðfærakynningar og ýmis konar námskeið. Þá heimsækja nemendur einnig aðra skóla, vinnustaði og heilbrigðisstofnanir í þeim tilgangi að flytja tónlist.