Starf í búsetu fatlaðs fólks er laust til umsóknar
Starf í búsetu fatlaðs fólks er laust til umsóknar
Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir að ráða kvenkyns starfsmann í búsetu fatlaðs fólks. Í starfinu felst að aðstoða fatlaðan einstakling við allar athafnir daglegs lífs, persónulegar og félagslegar. Þjónustan er veitt inni á heimili hans og eins utan þess þegar það á við.
Hæfniskröfur: Menntun sem nýtist í starfi og reynsla er kostur. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á frumkvæði, gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri og æskilegt er að viðkomandi sé með bílpróf.
Um tímabundið hlutastarf (70%) er að ræða til 20. september 2015. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Unnið er í vaktavinnu; kvöld- og helgarvaktir.
Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2015
Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi, steinunnr@skagafjordur.is, s: 899-2003.