Er lögheimili þitt rétt skráð í þjóðskrá?
09.10.2015
Mjög mikilvægt er að lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá. Sveitarfélagið óskar eftir því að þeir sem hafa látið undir höfuð leggjast að tilkynna um breytingu á lögheimili sínu geri það sem allra fyrst. Hægt er að fylla út eyðublað í afgreiðslu Ráðhússins eða tilkynna Þjóðskrá um breytinguna rafrænt á heimasíðu stofnunarinnar.
Hvað er lögheimili? Samkvæmt lögheimilislögum er lögheimili sá staður, þar sem maður hefur fasta búsetu.
- Hvað er föst búseta? Föst búseta er á þeim stað þar sem maður hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma.
- Hvenær og hvar skal tilkynna flutning? Breytingu á lögheimili ber að tilkynna innan 7 daga frá flutningi til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til. Ennfremur má tilkynna flutning beint til Þjóðskrár http://www.skra.is/thjodskra/. Undanþága frá þessu ákvæði um tilkynningaskyldu gildir m.a. um skólafólk við nám utan heimilissveitar.
- Enginn getur átt lögheimili hér á landi á fleiri en einum stað í senn. Leiki vafi á því hvar telja skuli að föst búseta manns standi, t.d. vegna þess að hann hefur bækistöð í fleiri en einu sveitarfélagi, skal hann eiga lögheimili þar sem hann dvelst meiri hluta árs. Dveljist hann ekki meiri hluta árs í neinu sveitarfélagi skal hann eiga lögheimili þar sem hann stundar aðalatvinnu sína enda hafi hann þar bækistöð. Það telst aðalatvinna í þessu sambandi sem gefur tvo þriðju hluta af árstekjum manns eða meira.