Fara í efni

Fákaflug á Hólum um helgina

24.07.2017
Mynd: Frá Landsmóti hestamanna á Hólum 2016

Hestamótið Fákaflug er haldið á Hólum í Hjaltadal helgina 28.-30. júlí. Hestamannafélagið Skagfirðingur heldur mótið í samstarfi við Hestamannafélögin Létti, Hring, Funa, Snarfara, Þyt og Neista.

Riðin verður sérstök forkeppni í A-flokki, B-flokki, barnaflokki, unglingaflokki og ungmennaflokki. Auk þess verður keppt í pollaflokki.

Skráning fer fram á sportfengur.com – mælt er með því að merkja við skráningu hvaða mót er greitt fyrir.

Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 25. júlí kl. 20:00. Ef skráning berst eftir þann tíma tvöfaldast skráningargjaldið.

Boðið verður upp á leigu á hesthúsaplássum á staðnum. 

Nánari upplýsingar á heimasíðu Hestamannafélagsins Skagfirðings.