Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum í byggðakvóta
Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2015/2016
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 605/2015 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015/2016
Sandgerðisbæ (Sandgerði)
Kaldrananeshrepp (Drangsnes)
Seyðisfjarðarkaupstað (Seyðisfjörður)
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1102/2015 í Stjórnartíðindum
Sveitarfélagið Skagafjörð (Sauðárkrókur og Hofsós)
Langanesbyggð (Þórshöfn og Bakkafjörður)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér.
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.
Umsóknarfrestur er til og með 28. desember 2015.
Fiskistofa 11. desember 2015