Fjárhagsáætlun 2025-2028 samþykkt í sveitarstjórn Skagafjarðar
Fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2025, ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2026-2028 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar 27. nóvember sl.
Fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árin 2025-2028 er sett fram í samræmi við 62. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, fyrir A-hluta og samantekinn reikning fyrir A- og B-hluta. Í A-hluta er aðalsjóður auk eignasjóða. Í B-hluta eru veitustofnanir, hafnarsjóður, félagslegar íbúðir, Tímatákn ehf., Flokka ehf. og Eyvindarstaðarheiði ehf, auk hlutdeildarfélaga sem koma inn í reikningsskil sveitarfélagsins eftir hlutfallslegri ábyrgð sveitarfélagsins, þ.e. Norðurá bs. og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Fjárhagsáætlunin sýnir rekstraráætlun, sjóðsstreymi og áætlaðan efnahagsreikning fyrir sveitarfélagið Skagafjörð, stofnanir þess og hlutdeildarfélög.
Forsendur fjárhagsáætlunar Skagafjarðar 2025 og áætlunar fyrir árin 2026-2028 byggja meðal annars á þjóðhagsspá Hagstofu Íslands varðandi verðlags- og launaþróun næstu ára.
Áætlun ársins 2025 gerir ráð fyrir að rekstrartekjur Skagafjarðar nemi 9.959 m.kr. hjá samstæðunni í heild, A- og B hluta, þar af eru rekstrartekjur A-hluta áætlaðar 8.472 m.kr. Rekstrargjöld án fjármagnsliða eru áætluð 8.890 m.kr., þ.a. A-hluti 7.796 m.kr. Rekstrarafgangur A- og B-hluta án afskrifta og fjármagnsliða er áætlaður 1.409 m.kr, afskriftir nema 340 m.kr. og fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur nema 275 m.kr. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar í heild A- og B-hluta er áætluð jákvæð, samtals með 794 m.kr. í rekstrarafgang.
Rekstrarafgangur A-hluta án afskrifta og fjármagnsliða er 858 m.kr, afskriftir nema 182 m.kr., fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur nema 184 m.kr. Rekstrarniðurstaða A-hluta sveitarsjóðs er því áætluð jákvæð um 492 m.kr.
Eignir Skagafjarðar eru áætlaðar í árslok 2025, 16.029 m.kr., þ.a. eignir A-hluta 12.011 m.kr. Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar í árslok 10.431 m.kr., þ.a. hjá A-hluta 9.141 m.kr. Eigið fé er áætlað 5.598 m.kr hjá samstæðunni og eiginfjárhlutfall því 34,93%. Eigið fé A-hluta er áætlað 2.870 m.kr. og eiginfjárhlutfall 23,89%.
Ný lántaka er áætluð 550 m.kr. hjá samstæðunni í heild og afborganir eldri lána og skuldbindinga verða 628 m.kr. Skuldir verða því greiddar niður um 78 m.kr. umfram lántöku á árinu 2025.
Reiknaðar lífeyrisskuldbindingar eru 2.052 m.kr. hjá samstæðunni, þar af 1.886 m.kr. hjá A-hluta. Skuldahlutfall samstæðunnar er áætlað 104,7% á árinu 2025 og skuldaviðmið 78,8%.
Áætlunin gerir ráð fyrir að veltufé frá rekstri A-hluta verði 819 m.kr. og veltufé frá rekstri samstæðunnar A- og B-hluta verði samtals 1.301 m.kr. Þá er gert er ráð fyrir að handbært fé í árslok verði 754 m.kr. hjá samstæðunni í heild.
Fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2025, ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2026-2028 má finna hér.