Framlengdur umsóknarfrestur vegna tímabundins starfs í Kleifatúni
Framlengdur umsóknarfrestur
Tímabundið starf í Kleifatúni er laust til umsóknar
Tímabil starfs: Frá janúar 2017 til maíloka 2017, með möguleika á þriggja mánaða lengingu eða til lok ágústs 2017.
Starfshlutfall: 85% starfshlutfall.
Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli II.
Lýsing á starfinu: Starfið felst í þjónustu við einstaklinga með fötlun og veitir aðstoð við daglegt líf sem og sinnir félagslegum jafnt sem líkamlegum þörfum eftir því sem við á.
Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.
Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.
Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 13. janúar 2017
Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í síma 455-6082 eða með tölvupósti sigthrudurh@skagafjordur.is.
Umsóknir: Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.