Fara í efni

Gámar og aðrir lausafjármunir – Umsóknir um stöðuleyfi

20.07.2017

Af gefnu tilefni vill Skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar vekja athygli á, með vísan til greinar 2.6.1 í byggingarreglugerð 112/2012, að sækja skal um stöðuleyfi til sveitarfélagsins til að láta eftirfarandi lausafjármuni standa lengur en tvo mánuði utan þeirra svæða sem sérstaklega eru skipulögð og ætluð til geymslu slíkra lausafjármuna: 

a. Hjólhýsi, á tímabilinu frá 1. október til 1. maí.

b. Gáma, báta, torgsöluhús, frístundahús í smíðum, sem ætlað er til flutnings, og stór samkomutjöld.

Umsókn um stöðuleyfi skal vera skrifleg og undirrituð af eiganda eða ábyrgðarmanni viðkomandi hlutar og skal fylgja samþykki eiganda eða lóðarhafa þeirrar lóðar sem fyrirhugað er að lausafjármunirnir standi á.

Umsóknir um stöðuleyfi verða teknar til afgreiðslu í Skipulags- og byggingarnefnd og niðurstaða þeirrar afgreiðslu öðlast gildi með staðfestingu sveitarstjórnar

Frestur til að skila inn umsóknum er til 15. september 2017.

 

 

Sauðárkróki 19. júlí 2017

 

Fh. Skipulags- og byggingarnefndar

Skipulags- og byggingarfulltrúi