Garðyrkjudeild Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar
Garðyrkjudeild Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar
Garðyrkjudeildin óskar eftir að ráða í þrjár stöður tímabundið.
50% starf frá 3. mars til 30. september til aðstoðar við ræktun sumarblóma, umhirðu þeirra og annarra verka hjá garðyrkjudeild.
2 x 100% starf frá 1. apríl til 30. september. Störfin fela í sér almenna garðyrkjuvinnu.
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára, hafa bílpróf og vinnuvélaréttindi á litlar vinnuvélar.
Starfið hentar bæði körlum sem konum
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Skagafjarðar eða Öldunnar -stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2014.
Upplýsingar gefur Helga Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri í síma 453-5811 eða netfangið helga@skagafjordur.is
Skila skal rafrænum umsóknum í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins eða hér.
Hlutverk garðyrkjudeildarinnar á sumrin er almenn garðyrkjuvinna, viðhald gróðurs, göngustíga, leiksvæða og grænna svæða sveitarfélagsins.