Grunnskólinn austan Vatna auglýsir starf skólaliða laust til umsóknar
Grunnskólinn austan Vatna auglýsir starf skólaliða laust til umsóknar
Upphaf starfs: 1. ágúst 2017.
Starfsstöð: Grunnskólinn á Hofsósi.
Starfsheiti: Skólaliði (með ræstingu).
Starfshlutfall: 100% starfshlutfall.
Lýsing á starfi: Í starfinu felst gæsla nemenda, bæði í frímínútum og eyðutímum auk þrifa á húsnæði skólans.
Hæfniskröfur: Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum. Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð. Reynsla og áhugi á að starfa með börnum er kostur.
Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ vegna FG.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí 2017
Nánari upplýsingar: Jóhann Bjarnason, skólastjóri, í síma 865-5044, johann@gsh.is.
Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins eða í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Grunnskólinn austan Vatna kennir á þremur starfsstöðum; Hofsósi Hólum og Sólgörðum. Þær voru sameinaðar í eina stofnun 1. ágúst 2007. Á Hólum og Sólgörðum eru nemendur í 1. – 7. bekk. Á Hofsósi eru nemendur frá 1. – 10. bekk, en starfsstöð þar er jafnframt safnskóli fyrir aðrar starfsstöðvar frá 8. – 10. bekk. Veturinn 2016-2017 voru 73 nemendur skráðir í skólann. Þar af eru 48 nemendur á Hofsósi, 18 nemendur á Hólum og 7 nemendur á Sólgörðum. Skólinn hefur um nokkurt skeið lagt áherslu á kennslu og vinnu með nýsköpun og eflingu heimabyggðar. Hann er grænfánaskóli og nú nýverið líka heilsueflandi grunnskóli.