Fara í efni

Grunnskólinn austan Vatna auglýsir tímabundið hlutastarf matráðs á Sólgörðum laust til umsóknar

19.06.2017

 Grunnskólinn austan Vatna auglýsir tímabundið hlutastarf matráðs á Sólgörðum laust til umsóknar

  

Tímabil starfs: 15. ágúst 2017 – 31. maí 2018.

Starfsstöð: Grunnskólinn á Sólgörðum.

Starfsheiti: Matráður III.

Starfshlutfall: 50% starfshlutfall.

Lýsing á starfi: Hefur yfirumsjón með eldhúsi, sér um matseld (heitan mat) og bakstur, skipuleggur matseðla allt að mánuð fram í tímann og annast innkaup á matvörum, áhöldum og tækjum. Hefur umsjón með þrifum.

Hæfniskröfur: Faglegur metnaður og æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af matreiðslustörfum. Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum. Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð. Hæfni til að vinna í hópi.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí 2017

Nánari upplýsingar: Jóhann Bjarnason, skólastjóri, í síma 865-5044, johann@gsh.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins eða í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

Grunnskólinn austan Vatna kennir á þremur starfsstöðum; Hofsósi Hólum og Sólgörðum. Þær voru sameinaðar í eina stofnun 1. ágúst 2007. Á Hólum og Sólgörðum eru nemendur í 1. – 7. bekk. Á Hofsósi eru nemendur frá 1. – 10. bekk, en starfsstöð þar er jafnframt safnskóli fyrir aðrar starfsstöðvar frá 8. – 10. bekk. Veturinn 2016-2017 voru 73 nemendur skráðir í skólann. Þar af eru 48 nemendur á Hofsósi, 18 nemendur á Hólum og 7 nemendur á Sólgörðum. Skólinn hefur um nokkurt skeið lagt áherslu á kennslu og vinnu með nýsköpun og eflingu heimabyggðar. Hann er grænfánaskóli og nú nýverið líka heilsueflandi grunnskóli.