Fara í efni

Grunnskólinn austan Vatna óskar eftir að ráða karlmann til starfa

19.06.2017

 Grunnskólinn austan Vatna óskar eftir að ráða karlmann til starfa

 

Upphaf starfs: 20. ágúst 2017 eða eftir samkomulagi.

Starfsstöð: Um 20% starfshlutfall er að ræða í Grunnskólanum á Hofsósi.

                    Um 10% starfshlutfall er að ræða í Grunnskólanum á Hólum í Hjaltadal.

                    Hægt er að sækja um bæði störfin eða annað hvort.

Starfsheiti: Baðvörður í íþróttamannvirki.

Lýsing á starfi: Í starfinu felst almenn gæsla í strákaklefa í íþrótta- og sundtímum.

Hæfniskröfur: Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum. Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð. Hæfni til að vinna í hópi. Reynsla og áhugi á að starfa með börnum er kostur.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí 2017

Nánari upplýsingar: Jóhann Bjarnason, skólastjóri, í síma 865-5044, johann@gsh.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins eða í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

Grunnskólinn austan Vatna kennir á þremur starfsstöðum; Hofsósi Hólum og Sólgörðum. Þær voru sameinaðar í eina stofnun 1. ágúst 2007. Á Hólum og Sólgörðum eru nemendur í 1. – 7. bekk. Á Hofsósi eru nemendur frá 1. – 10. bekk, en starfsstöð þar er jafnframt safnskóli fyrir aðrar starfsstöðvar frá 8. – 10. bekk. Veturinn 2016-2017 voru 73 nemendur skráðir í skólann. Þar af eru 48 nemendur á Hofsósi, 18 nemendur á Hólum og 7 nemendur á Sólgörðum. Skólinn hefur um nokkurt skeið lagt áherslu á kennslu og vinnu með nýsköpun og eflingu heimabyggðar. Hann er grænfánaskóli og nú nýverið líka heilsueflandi grunnskóli.