Fara í efni

Hætta vegna snjósöfnunar undir háspennulínum á Þverárfjalli

13.03.2020
Snjórinn hefur m.a. hlaðist upp undir háspennulínur RARIK og þar sem vírinn er lægstur er hann kominn undir 2 metra

Mikill snjór er nú á Þverárfjalli á Skaga. Snjór hefur m.a. hlaðist upp undir háspennulínu RARIK á svæðinu frá bænum Þverá til Hvammshlíðar.

Frétt uppfærð 12.03.2020, kl 17:20:

Snjór á þessu svæði er nú orðinn svo mikill að vírinn þar sem hann er lægstur er kominn niður fyrir 2 metra. Það verður reynt að ryðja snjó undan línunni ef aðstæður leyfa og verður það líklega gert mánudaginn 16.3.2020.

Um fleiri kafla á línunni getur verið að ræða og fólk sem á leið um þetta svæði er vinsamlegast beðið um að sýna varkárni. Við bendum einnig á síma svæðisvaktar RARIK á Norðurlandi, 528 9690.

Fréttatilkynning