Fara í efni

Hættuástand á Þverárfjalli - tilkynning frá RARIK

06.03.2020

Mikill snjór er nú á Þverárfjalli. Snjór hefur m.a. hlaðist upp undir háspennulínu RARIK á svæðinu frá bænum Þverá til Hvammshlíðar og er vírinn þar sem hann er lægstur kominn niður fyrir 3 m. Um fleiri kafla á línunni getur verið að ræða og fólk sem er á ferðinni um þetta svæði er vinsamlegast beðið um að sýna varkárni. Við bendum einnig á síma svæðisvaktar RARIK á Norðurlandi.

Tilkynning frá RARIK