Útboð - Heimsending máltíða innan Sauðárkróks
18.02.2025
Consensa fyrir hönd sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir tilboðum í heimsendingu máltíða innan Sauðárkróks samkvæmt skilmálum útboðsins. Um er að ræða þjónustu fyrir þá sem geta ekki annast matseld sjálfir og eiga rétt á heimaþjónustu samkvæmt reglum sveitarfélagsins.
Hægt er að sækja öll útboðsgögn án greiðslu á útboðsvefnum www.tendsign.is.
Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á útboðsvef eigi síðar en kl. 12:00 þann 20. mars 2025.
Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is/utbod/auglyst-utbod