Hlutastarf í liðveislu er laust til umsóknar
Hlutastarf í liðveislu er laust til umsóknar
Framlengdur umsóknarfrestur
Tímabil starfs: Lok maí til 15. september 2017 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Starfshlutfall: 75% starfshlutfall.
Starfsheiti: Félagsleg liðveisla II.
Lýsing á starfinu: Starfsmaður aðstoðar einstakling með fötlun í nágrenni Varmahlíðar. Starfið felst meðal annars í aðstoð við athafnir daglegs lífs sem og félags- og frístundarlega aðstoð.
Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fólki með fötlun og hefur að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttsemi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjandi skal hafa náð 18 ára aldri.
Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2017
Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í síma 455-6082 eða með tölvupósti, sigthrudurh@skagafjordur.is.
Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.