Hrói Höttur í Miðgarði
03.03.2016
Árshátíð yngri nemenda í Varmahlíðarskóla verður haldin í Miðgarði, föstudaginn 4. mars kl. 15:00. Nemendur 1.- 6. bekkjar sýna leikritið um Hróa Hött eftir handriti Guðjóns Sigvaldasonar. Leikstjóri er Helga Rós Sigfúsdóttir og um undirleik sér Stefán R. Gíslason. Aðgangseyrir er 2000 kr fyrir 16 ára og eldri og 1000 kr fyrir nemendur á grunnskólaaldri utan Varmahlíðarskóla. Innifalið í aðgangseyrinum eru kaffiveitingar að lokinni sýningunni.