Fara í efni

Hrossaeigendur Sauðárkróki athugið!

18.06.2024

Þeir sem hafa haft bletti innan bæjarlandsins, til þrifabeitar fyrir hross, eru beðnir að hafa samband, óski þeir eftir að fá sömu skika til þrifabeitar í sumar. Gerðir verða skriflegir samningar við aðila, þar sem fram komi staðsetning skika, hrossafjöldi, tryggingar o.s.f.v. Þeir sem ekki hafa haft skika til afnota geta sent inn umsókn og verður dregið milli umsækjenda, sæki fleiri en einn um sama blett. Umsóknir sendist á kari@skagafjordur.is.