Fara í efni

Hús Frítímans auglýsir 2 störf laus til umsóknar

14.12.2017

 Hús Frítímans auglýsir 2 störf laus til umsóknar

 

Tímabil starfa: Frá 3. janúar 2018 til 20. maí 2018, eða eftir samkomulagi.

Fjöldi starfa: 2 störf.

Starfshlutföll: Annað starfið er 30% og hitt er 75%.

Starfsheiti: Frístundaleiðbeinandi I.

Lýsing á störfum: Störfin eru fólgin í skipulagningu og vinnu með börnum og unglingum í frístundaþjónustu sveitarfélagins. Störfin henta jafnt konum sem körlum.

Hæfniskröfur: Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri, hafa ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Leitað er að einstaklingum sem hafa til að bera hæfni í mannlegum samskiptum, hafa gaman að vinna með börnum og unglingum og vilja til að læra og þroskast í störfum sínum. Reynsla og menntun er kostur.

Vinnutími: Vaktavinna.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 27. desember 2017

Nánari upplýsingar: Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála, í síma 660-4639 eða valdi@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar sem og konur eru hvattir til að sækja um.

 

Hús frítímans er miðstöð tómstundastarfs allra íbúa sveitarfélagsins, óháð aldri. Í Húsi frítímans er starfsemi allan daginn fyrir mismunandi hópa. Auk starfsemi í þágu eldri borgara, ungmenna og grunnskólabarna er húsið opið fyrir hvers konar félags- og menningarstarfsemi íbúa héraðsins.

Við skipulagningu dagskrár Húss frítímans er tekið mið af fjölskyldustefnu sveitarfélagsins og er reynt að flytja starfsemina framar á daginn, þar sem markmiðið er að börn yngri en ellefu ára séu ávallt búin klukkan fimm á daginn og geti notið samvista við foreldra sína eftir vinnu.