Fara í efni

Íbúafundur í Varmahlíð um stöðu framkvæmda við Norðurbrún og Laugaveg

05.09.2022
Varmahlíð

Boðað er til íbúafundar í menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð, fimmtudagskvöldið 8. september kl. 20.

Á fundinum mun fara fram upplýsingamiðlun til íbúa um stöðu framkvæmda vð Norðurbrún og Laugaveg í Varmahlíð þar sem aurskriða féll fyrir rúmu ári síðan. Farið verður yfir þær aðgerðir sem þegar hefur verið ráðist í sem og þær framkvæmdir sem framundan eru á svæðinu.